llgjarna manneskja

Ég er illa innrætt. Ég hlýt að vera það. Ég hlæ að enskunni í formlegum e-mailum sem send eru á vegum HÍ ef hún er vitlaus. Ég er orðin meira snobbið. Í dag fékk ég til dæmis e-mail þar sem talað var um að þeir sem hefðu misst af kynningarfundinum mættu samt mæta á æfingu. Á ensku var það þýtt sem "mist". Sem mér fannst ótrúlega fyndið.

Annars hef ég nú ekki efni á að vera að gera grín að öðrum. Þarsíðustu helgi púsluðum við skötuhjúin ógeðslega erfitt Wasgij púsl, með fullt af litlum köllum og smáatriðum. Við tókum það með okkur upp í sumarbústað og eyddum heilli helgi í að klára það og þar sem við vorum nú ekki alveg á því að skemma það strax aftur púsluðum við því ofan á flísteppið mitt og brutum það svo saman og bárum varlega út í skott, og þaðan inn í herbergi í Mosó og settum það varlega frá okkur á gólfið. Í heilu lagi!

Nema hvað að síðustu helgi var ég að fara fram í stofu að horfa á mynd með móður minni,  og mér var svo kalt að ég ákvað að taka eitthvað fram með mér. Ég var náttúrulega búin að steingleyma því hvað var pakkað inn í flísteppið þegar ég sá það liggja þarna samanbrotið á gólfinu, hugsaði með mér hvað ég væri nú heppin að hafa fundið það, og kippti því með mér. Allt púslið hrundi út úr teppinu og dreifðist út um allt gólf, í molum. Þar fór það. Ég var svo svekkt að ég hefði getað skælt.

Þetta minni mitt er á við gatasigti GetLost

Annars áskil ég mér hér með rétt til að hlæja að öðrum þegar þeir heyra ekki til af því ég geri svo mikið grín að sjálfri mér LoL

Isis


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Úff, þú ert skárri en ég, að hlæja bara! Ég fæ kjánahroll og óska þess alltaf að það væri prófarkarlesari sem færi yfir póst sem inniheldur upplýsingar bæði á íslensku og ensku, áður en hann er sendur. Því oftar en ekki er textinn bara þýddur beint orð fyrir orð, og sjitt, stafsetningin! Líka þegar sumir eru að tala ensku, þá óska ég þess, fyrir hönd viðkomandi, að þeir væru með einkatúlk. Eða svona babel-fisk (ekki eins og Alta Vista, samt), það væri mjög hjálplegt mörgum.

Ef einhver er snobbaður, þá er það ég!

Katrín (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband