9 tímar og 13 mínútur...

Þangað til ég legg af stað í langferðina...

Þó ekki ferðina stóru, enda er ég hvergi nærri því að geispa golunni, en þetta er samt stór ferð, ég er á leið til útlanda. Nánar tiltekið til Keele. Að læra. Eitthvað.

Ég er á leið út í hinn stóra heim með 23 kílóa ferðatösku fulla af fatnaði, 15 kílóa handfarangursferðatösku með helstu nauðsynjum og slatta af breskum og íslenskum pening í veskinu mínu. Bróðir minn er búinn að fá lykilinn af bílnum, Klara er búin að fá allt það sjónvarpsefni sem ég hyggst ekki taka með mér og Daði kemur í humátt á eftir mér með háhæluð kvenmannsstígvél í ferðatöskunni. Ég vona að hann verði ekki stoppaður í tollinum, það gæti orðið erfitt að útskýra það.

Ein góð vinkona mín sagði mér að þegar hún flutti út í 10 mánuði var hún send í bíó kvöldið áður til að róa taugarnar. Ég hef reyndar ekki tíma til að fara í bíó, en ég borðaði steinasteik og fullt af salatinu hennar mömmu, er að fara í Vesturbæjarísbúðina að kaupa eftirrétt og ætla í epískt bað áður en ég fer að leggja mig, vegna þess að þetta er síðasta baðið sem ég fer í þangað til ég skelli mér í jólabaðið.

Mér finnst undarlegt að hugsa til þess að eftir þrjá mánuði kem ég aftur heim, rétt í tæka tíð fyrir jólin, mögulega með 1 tonn af bókum með mér (ég verð eins og Lísa í Undralandi þegar ég kemst inní Barnes & Noble, svo ekki sé minnst á það hvað það er auðvelt og ódýrt að panta bækur af amazon.co.uk) og vonandi reynslunni ríkari. Þetta verður góð ferð og mjög góð fyrir mig og ef ég mætti taka allt ferlið til baka núna þá myndi mér ekki detta í hug að gera það neitt öðruvísi.

Ef þig langar að senda mér vesturbæjarís, appelsín eða bara langt bréf, eða koma í heimsókn, hafðu þá samband við mig (ég verð með þessa síðu, skype og msn) og ég skal gefa þér nánari upplýsingar um staðsetningu mína (en góðar siðavenjur hafa kennt mér að gefa ekki viðkvæmar upplýsingar upp á netinu bara si svona). Ef þig langar til þess að ég sendi þér póstkort, ben & jerry's eða eitt gott langt bréf (eða bara komi í heimsókn), skildu þá eftir heimilisfang í kommentakerfinu. Nú eða hafðu samband við mig ef þú ert svona vel upp alin/n eins og ég.

Ég kveð því að sinni, ég veit ekki hversu langan tíma það mun taka að koma netinu upp þegar ég er komin til Keele, en ég verð virk í blogginu um leið og það gerist og mun reyna að setja eins margar myndir á netið og ég get svo þið sjáið nú afrakstur þessarar ferðar minnar sem fyrst :)

Einnig vil ég benda nánustu á það að ég verð með símann á mér og fyrstu dagana, eða þangað til ég næ að fá mér breskt númer, þá mun ég vera með íslenska símkortið á mér. Vinsamlegast ekki senda mér sms eða hringja í mig nema í sárri nauðsyn og neyð, vegna þess að ég hyggst ekki borga símreikning upp á margar millur!

Bless á meðan!

Anna Margrét


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góða ferð!

Katrín (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 15:32

2 identicon

Já, ég tek undir það: Góða ferð  og segi líka: Góða skemmtun

Gaman að heyra að maður er álitin góð vinkona   því það ert þú líka

(já, ég ofnota broskallana, en ég er bara svo mikið svoleiðis  þeir geta sagt svo mikið). Ætlaði nú reyndar að senda þér SMS í gærkvöldi og óska þér góðrar ferðar, en gleymdi mér algjörlega  í því sem ég var að gera . Við sjáumst svo um jólin

Sissa (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband