Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Keele og Worms.

Þá er maður búinn að jafna sig aðeins á sjokkinu :)

Ég semsagt varð þreytt á biðinni þegar Icelandair hækkaði flugfargjaldið um 5000 krónur. Ég uppgötvaði það 25. að flugfargjaldið var búið að hækka, og þegar það bættist við uppsagnirnar hjá Icelandair og verkföllin hjá flugumferðarstjórum þá bara hreinlega gat ég ekki verið róleg (sérstaklega ekki þar sem flugið til Manchester kostar tæp 70.000). Eftir smá spjall við Egil í hádeginu komumst við að þeirri niðurstöðu að við vildum ekki panta flug fyrr en við værum búin að fá svar, en að það væri eflaust hættulaust að senda e-mail á hana Caroline vinkonu okkar hjá Keele háskóla. Ef það væri bara afskaplega kurteisislega orðað.

Ég sendi e-mail á hana klukkan 15:09 þar sem ég sagði að vegna breyttra aðstæðna á Íslandi færi allt hækkandi, þar á meðal flugfargjöldin og við værum orðin frekar stressuð með að panta okkur flug, jafnvel að íhuga að gera það áður en við fengjum svar, en ef svarið væri að berast á næstu dögum þá gætum við nú eflaust hinkrað í nokkra daga, þannig að allar upplýsingar sem hún gæti gefið okkur væru vel þegnar.

Klukkan 3:50 fékk ég þetta e-mail:

Hi Anna,

cc Egill Bjorgvinsson, Bjorg Eysteinsdotti

You are ok to book your flights as you and Egill will be both be
accepted at Keele.  The letters of acceptance will go out next week.

Á eftir komu svo upplýsingar um hvernig við ættum að komast að Keele og fleira skemmtilegt. Mín fyrstu viðbrögð voru að hringja í Egil og við vorum saman í því að trúa þessu ekki í nokkrar mínútur. Svo ákváðum við að bóka flug sama kvöld og ég hélt áfram að hringja í fólk (Mömmu, Pabba, Daða, Bjössa) og skríkja af gleði.

Um kvöldið bókuðum við svo flug, og munum við fljúga út að morgni hins 25. september (nákvæmlega þremur mánuðum eftir að við fengum svarið, mjög töff) klukkan 7:40. Við lendum þar á Heathrow flugvelli klukkan 11:45 og tökum rútu klukkan 15:00 áleiðis til Keele. Rúmir þrír tímar til að drepa á Heathrow flugvelli. Júhú! Þegar þangað kemur eigum við að sækja lyklana okkar og ganga frá skráningu og svo fer kvöldið í að koma sér fyrir í nýja herberginu. Við leggjum svo af stað heim um miðjan dag 19. desember. Þá tökum við væntanlega rútu til London og eigum flug heim rúmlega 20:30. Reiknum allavega með að vera lent á íslenskri grundu klukkan 23:30 að kvöldi hins 19.

Reikna samt alveg með því að gera helling af mér á milli þessara dagsetninga Grin

Þetta helltist samt yfir mann um leið og maður gekk frá fluginu. Hvað maður ætti eftir að gera mikið, að maður væri í alvörunni að fara í allan þennan tíma og hvað maður ætti eftir að sakna allra mikið. Mér fannst líka ennþá súrrealískara þegar mútta hringdi í mig í gær og fór að segja mér að nú þyrftum við að finna nógu stóra ferðatösku og fara að skipuleggja hvað ég ætlaði að taka með mér. Þetta varð eitthvað svo raunverulegt.

Mér finnst þetta samt voða gaman :)

Annars, að allt öðru. Gummi Valur Drekafluga bauð mér í heimsókn í gær og leyfði mér að prufa Worms 4. Égr húkked. Liðsmenn mínir hétu nöfnum eins og "Jeff" "Cesar" og "Engelbert" og liðið mitt hét "The Transvestit" af því við komum ekki meira fyrir. Það er, þúst, franska. Þeir voru með páfahatt, einglyrni, bling á fingrunum og skoskt yfirvaraskegg (rautt að sjálfsögðu) og töluðu skosku. Þessi leikur er ótrúlega skemmtilegur. Mæli með honum við alla. Það er fátt skemmtilegra en að murrka lífið út úr liðum vina þinna með illkvittnislegum aðferðum (og kindum). Mjög heilsusamleg skemmtun Happy

Læt fylgja með mynd af herlegheitunum;

W4m-ps2-cover

En jæja, ég kveð í biði. Farin á Keele heimasíðuna!

Isis


Keele...

Ég var að komast inn í Keele.

Þetta er mjög súrrealísk stund.

Ég veit ekki hvað ég á að segja meira.

Húrrandi anti-klæmax.

Meira síðar.

Isis


Aðvörun, aðvörun!

Ég hafði hugsað mér að vera í hvítum jakka á morgun, og verð sennilega mjög þreytt svo ég gæti hreyft mig svolítið þunglamalega. Alls ekki hafa áhyggjur þótt þið sjáið mig svona útundan ykkur. Og helst ekki taka myndir af mér með aðdráttarlinsu, mér finnst það ekki gaman. En ég lofa ykkur, þið þurfið ekki að vera hrædd.

Ég er ekki ísbjörn!

Grin


mbl.is Bjarndýrsútkall í Langadal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðu fréttirnar og slæmu fréttirnar...

.......Blogg þetta hefur verið editað 

Svo er ég líka ennþá að bíða eftir bréfi frá Keele. Biðin er að fara með mig. Ef svarið kemur ekki í þessari viku, þá leggst ég eflaust bara í þunglyndi næstu helgi og neita að hreyfa mig fyrr en þeir eru búnir að svara mér. Ef ég lít samt á björtu hliðarnar þá veit ég þó til þess að ein önnur sem var í Keele 2006-2007 fékk svar frá þeim 26. júní, svo ég leyfi mér að halda í þá von að þetta verði bara á allra næstu dögum.

Alltaf að líta á björtu hliðarnar. Svo var þetta líka rosalega fín helgi, golfmót og svona, ég, ma og pa, Bjössi Magnús og Daði skelltum okkur í bústaðinn yfir helgina og höfðum það rosalega kósý, spiluðum, sváfum frameftir, borðuðum góðan grillmat og pönnsur og svona. Við kíktum svo á Egil á leiðinni heim og litli frændi hans var í heimsókn líka, algjör snillingur þar á ferð. Vildi helst hvergi vera nema hjá okkur, fór í feluleik við mig og sýndi mér mynd af hundinum sínum sem var algjör dúlla. Svo spurði hann mig í fullri einlægni hvort hann ætti kannski að fara fram og sýna kallinum mínum myndina líka. Daði var ekki kallaður annað en "kallinn" í þeirri heimsókn. Hann gaf okkur líka orma (pasta). Algjör dúlla InLove

Nú er ég að hugsa um að leggjast í grúsk á netinu. Eina leiðin til að stytta biðina eftir svarinu frá Keele er að skipuleggja ferðina. Án gríns. Þegar svarið loksins kemur verður ekkert eftir. Ég veit hvenær ég ætla út, hvenær ég ætla að fljúga heim (nákvæmar dagsetningar og allt), hvernig fyrstu dagarnir í Orientation verða og svo er ég alltaf að búa til lista í höfðinu mínu yfir það sem ég vil taka með mér heiman frá, og það sem ég get keypt úti, hvernig ég á eiginlega að fara að því að koma öllu sem ég þarf fyrir í einni stórri tösku (!!!) undir 20 kílóum, hvaða föt ég get tekið og hvað ég get skilið eftir. Ég er snargeðveik, ég veit það. En ef ég geri þetta ekki þá fúnkera ég ekki fyrir spenningi Sideways Ég ætla líka að fara að byrja að lesa bækurnar fyrir einn kúrsinn, af því hann gildir margar margar einingar og það eru þónokkuð margar bækur í þeim kúrs!

Ég er farin á Keele heimasíðuna.

Isis ofurlúði


Reepicheep! Og Keele. Og franska.

Mig dreymdi á frönsku í nótt. Það var alveg pínku fyndið vegna þess að ég man það. Ég vissi ekki að undirmeðvitund mín kynni svona mikla frönsku, en fólkið í draumnum blaðraði og blaðraði og ég "skyldi" allt. Í draumnum altént. En ég flink. Það er ekki langt síðan ég uppgötvaði að mig dreymir reglulega á ensku, þótt ég fatti það ekki alltaf. Alltaf gaman að bæta í tungumálaflóruna.

Ég bíð ennþá spennt eftir svari frá Keele. Flugfargjöld hækka og hækka og um leið og ég hef fengið svar get ég pantað mér flug. Ég þarf líka að pæla í því hvar ég á að fá nógu stóra tösku til að geyma allt sem ég þarf að hafa með mér, tala við LÍN um lánið mitt (af því hálft árið er ég í leiguhúsnæði og hálft í foreldrahúsum), spara pening og ganga frá fullt af lausum endum. Mér finnst það samt ekkert leiðinlegt, þvert á móti. Það er bara verst að bíða.

Annars vildi ég hér með vekja athygli ykkar á yndislegri mynd. Ég fór á nýju Narníu-myndina í gær og ég var gjörsamlega dolfallin. Ég lifði mig svo inn í hana, að það var engu lagi líkt. Hún er rosalega vel gerð, sum atriðin eru alveg mögnuð, flottar tökur í henni og karakterarnir skemmtilegir. Ef það er ekki nóg þá get ég líka glatt ykkur með því að Eddie Izzard leikur þar hlutverk músarinnar Reepicheep og hann er snillingur eins og venjulega. Það er bókstaflega allt sem hann segir í myndinni fyndið.

Reepicheep: Choose your last words carefully, Telmarine.
Prince Caspian: You are a mouse.
Reepicheep: I was hoping for something a little more original.

Pattertwig the Squirrel: We could gather nuts!
Reepicheep: [sarcastically] Yes! And then throw them at the Telmarines!... Shut up.

Ég mæli með því að allir kíki á hana, hún er æðisleg Smile

Isis


Sleeps like an angry bear...

Þetta eru bræðurnir Egill, Teitur og Júlíus í hljómsveitinni Sleeps Like an Angry Bear. Vídjó þetta var tekið upp á tónleikum sem ég, Daði og Bjössi skelltum okkur á á laugardaginn. Þeir voru haldnir í Kvosinni í Mosó, utandyra og veðrið var yndislegt. Þessir tónleikar voru æðislegir og við erum búin að vera sönglandi þetta lag síðan þá. Endilega tjekkið á þeim, ég er voða hrifin af tónlistinni þeirra InLove

c_documents_and_settings_gunnlaugur_my_documents_my_pictures_musmos18

Frá vinstri; Daði, Júlíus, Egill, ég og Bjössi Magnús. Þessi mynd er mjög svo stolin, ég tók hana ekki, á hana ekki og stal henni af linknum sem Egill sendi á mig gegnum msn og sá sem tók hana fær hérmeð fullan kredit fyrir. En mér finnst hún voða skemmtileg. Ég komst í þvílíkt sumarskap þarna á laugardaginn. Takk fyrir mig bræður! 

Isis 


Er það samt ekki kommon sens?

Fólk sem hefur áhyggjur af einhverju, hvort sem það er óhamingjusamt hjónaband eða peningamál eða eitthvað annað á oft til að missa svefn. Fólk sem er áhyggjulaust sefur væntanlega mun betur en fólk sem hefur áhyggjur af einhverju. Ég hefði getað sagt þeim þetta. Ætli þessi mikilvæga rannsókn hafi kostað mikið Grin

Isis


mbl.is Nærir svefninn hamingjuna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég geeet ekki beðið lengur!

Fyrir örfáum vikum sendi ég þykkt umslag á þetta heimilisfang;

           Centre for International Exchange & Languages
        
  Keele University
          
Walter Moberly Building
          
Keele, Staffordshire, ST5 5BG

Fyrir nokkrum dögum sendi ég svo e-mail á vinkonu mína hana Caroline hjá Keele háskóla og spurðist fyrir um umsóknina. Hún svaraði um hæl að hún gæti ekki gefið mér nákvæma dagsetningu á svari, en svarið myndi berast á næstu vikum. Um svipað leyti fékk ég einnig svar frá yndislegum kennara við amerísk fræði hjá Keele háskóla þar sem hann staðfesti leyfi mitt til inngöngu í einasta kúrsinn sem mig hefur nokkurn tímann langað til að fara í um ævina og núna er ég orðin svo spennt að ég hef lítið gert nema hangið á Keele heimasíðunum að skoða allt frá Orientation week (25. september til 1. október) til aðstæðna (tvö í herbergi fyrstu vikurnar en ein eftir það, eldhúsaðstaða, sameiginleg herbergi etc) og allt að ferðum sem eru í boði frá Keele háskóla til m.a. Wales (7 pund), Alton Towers (? pund), á jólamarkað í gömlum miðaldabæ og til London. Einnig er ég búin að eyða miklum tíma í að skoða leslistana fyrir kúrsana mína og ég hef sjaldan verið jafn spennt yfir nokkru um ævina.

Ef ég fæ ekki þykkt umslag með stóru feitu "ACCEPTED" efst á fremsta blaðinu er ég ansi hrædd um að ég fari að gráta.

Isis ofurspennta


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband