...af hverju ég er ennþá að fá sms frá SPRON um innistæðu mína á reikningi mínum hjá Spron.
Svona bæðevéi þá skilst mér að ég borgi líka þessum banka sem er ekki til lengur fyrir smsin...
Undarlegt...
Isis
Gæti hafa dottið uppfyrir einhvers staðar...
...úbbs :)
Þetta setur Daði inn fyrir hönd Önnu sinnar vegna þess að hún getur af einhverri ástæðu ekki vistað blogg. Þetta var skrifað 27. september
Mikið rosalega er erfitt að byrja að skrifa á íslensku núna eft
Mikið rosalega er erfitt að
byrja að skrifa á íslensku núna eftir að
hafa talað ekkert nema ensku í tvo heila daga. Ég
veit að ég er ekki búin að vera hérna
lengi, en það er magnað hvað það er gott
að vera komin með netið. MBL.is hefur aldrei verið
fallegri.
Það er
svo mikið búið að gerast að það er
erfitt að setja það í eitt gott blogg. Ég
ætla samt að reyna að segja ykkur allt, bæði
jákvætt og neikvætt og þeir sem nenna að
lesa þetta allt fá mikið kudos. Ég og Egill
mættum á flugvöllinn klukkan hálf sex á
fimmtudagsmorguninn. Ég verslaði mér smá
snyrtivörur og bækur og við fengum okkur að borða.
Svo fórum við út í vél. Ég var
mjög hissa að sjá hversu flott vélin var, en
við hvert sæti var lítill snertiskjár, þar
sem maður gat valið sitt eigið sjónvarpsefni. Ég
valdi að horfa á Happy Feet, Egill horfði á
Little Miss Sunshine og gaurinn hinum meginn við mig horfði á
21. Þetta var mjög þægilegt flug og ég
á fallega mynd af Englandi, sem ég tók meðan
við vorum í lendingarröðinni.
Þegar á
flugvöllinn var komið tóku á móti okkur
tveir fulltrúar nemendafélagsins. Við biðum við
terminal 1 í ca 40 mín. eftir nemenda frá
Amsterdam, en fluginu hennar seinkaði, svo við vorum send á
Terminal 2. Þar hittum við fyrir feiminn hóp af
skiptinemum og nokkra rosalega félagslynda
nemendafélagsfulltrúa. Við settumst þar og
við tók löng löng bið. Nánar tiltekið
4 tíma löng bið. Við fengum okkur eitthvað að
maula og drekka og ég keypti tvær bækur og kassa
af mini-Cadbury's súkkulaði (sem ég á ennþá
og ætla mér að narta í yfir góðri
bók í kvöld, hohoho). Annars var þetta bara
löng löng bið. Seinasta skiptinemanum seinkaði svo
mikið að við urðum að fara án hans og
vorum þó búin að vera á flugvellinum í
langan langan tíma.
Við tók
3 klukkutíma keyrsla inn í Keele. Rútan var
frábær, partýrúta með sjónvarpi
(breskur uppistandari á fóninum, hvað annað)og
örbylgjuofni (!!!). Umhverfið var gullfallegt, en flestir
voru dauðþreyttir og flestir ef ekki allir sofnuðu
eitthvað á leiðinni. Þegar við loksins komum
til Keele var orðið kolniðamyrkur og við fórum
inn í kapelluna til að ná í lyklana að
herbergjunum okkkar. Svo var tekin sameiginleg ákvörðun
um að fara fyrst og skoða herbergin okkar og fá okkur
svo pizzu á nýnemakvöldinu í Students
Union.
Ég ætla
ekki að ljúga neinu eða fegra hérna. Ég
fékk áfall þegar ég sá herbergið
mitt. Herbergisfélaginn minn tók á móti
mér í óða önn að ganga frá
dótinu sínu, og þar sem hvorug okkar hafði
orku í að ganga frá öllu, var það
frekar kuldalegt að sjá. Byggingin var myrkvuð, ekki
sála hér fyrir utan okkur, og mér hætti
alveg að lítast á blikuna. Ég henti dótinu
mínu inn á mitt gólf, kynnti mig fyrir
Josephine, sem er ss. franska herbergisfélagan mín og
dreif mig svo aftur niður í Students Union þar sem
ég kvartaði sáran undan lélegum húsakosti
við fólkið sem fékk herbergi með klósetti
og sturtu og því um líku.
Raunin er
nefnilega sú að herbergið er allt í lagi. En
það er ekki mjög stórt, bara eins og venjulegt
svefnherbergi í íbúð heima, og að deila
einu skrifborði, einni internettengingu, einum fataskáp og
fjórum skúffum á milli tveggja er frekar hart.
Gólfpláss er ekki magnað hér á meðan
við erum 2, en sem betur fer er hún Josephine mín
alveg yndisleg, skemmtileg, þolinmóð og kurteis og
við höfum spjallað mikið hér í kvöld.
Í
Students Union tóku á móti mér sömu
skiptinemarnir og ég hafði eytt öllum deginum með.
Ég held að þegar allir eru svona í sama báti,
þá virkilega stekkur fólk á hvaða
tækifæri sem er til að eignast aðeins fleiri
vini. Allavega þá hefur myndast frekar þéttur
hópur af fólki í kring um þá sem
voru þarna saman á flugvellinum. Það fólk
sem ég umgengst mest hér fyrir utan Egil og
herbergisfélöguna mína eru Arienne frá
frönskumælandi Kanada, Kate frá Kanada, Trisha frá
Kanada, Adolphe frá Kamerún, John frá
Grikklandi, Rob frá Hollandi og Guy frá Belgíu.
Saman tölum við skemmtilega blöndu af íslensku,
ensku og frönsku (af því það eru
útbreiddustu tungumálin innan hópsins ;)) og við
höfum haldið hópinn í þessa tvo daga.
Vð skelltum
okkur því í göngutúr um hverfið,
frekar seint um nótt, og ég ætla að reyna að
setja inn myndir á morgun af því hér er
mjög mjög fallegt, en við fórum semsagt frekar
stóran hring, skoðuðum Keele Hall (sem er mögulega
fallegasta bygging sem ég hef séð) gengum eftir
einhverjum stíg uppfrá honum, í gegnum steingöng
og aftur niður á aðalgötuna (eitthvað sem
maður hefði ekki gert nema hvað að við vorum
náttúrulega sjö saman)og svo í bygginguna
hans John sem sýndi okkur hvernig herbergi með baðherbergi
lítur út, og ég áttaði mig á
því að mitt var ekkert lítið og ljótt,
bara pínu gamalt og illa skipulagt. Strákarnir fylgdu
okkur svo heim í Horwood hall (en þar bý ég,
Egill, Arienne og Guy) og röltu til baka. Þá var
klukkan um 12 á miðnætti hér úti.
Ég fór
inn og upp stigann og stakk lyklinum í skránna. Allt
var myrkvað svo ég reyndi að hafa eins hljótt
og ég gat. Ég fór að gramsa eftir nokkrum
hlutum (bók etc) þegar ég heyrði allt í
einu "þú mátt alveg kveikja ljósið"
fyrir aftan mig. Ég var fljót að leggjast upp í
rúm og byrjaði að lesa aðeins en þegar ég
lagði frá mér bókina til að fara að
sofa kom fyrsta menningarsjokkið. Og heldur betur menningarsjokk.
Ég hélt ég myndi deyja mér leið svo
illa. Það er alveg sama hvað maður heldur að
maður sé einmana þegar maður er heima, maður
er aldrei eins einmana og sem skiptinemi. Þetta veit ég
eftir eitt kvöld. Ég vissi ekki að það gæti
verið svona vont að vera einmana. Mig langaði svo heim,
ég var alveg tilbúin að breyta fluginu og koma heim
eftir minna en 24 tíma í Bretlandi. En ég setti
mér markmið og ákvað að þrauka þangað
til 10. okt, þegar Daði kemur, njóta tímans
með honum og sjá svo hvort ég vil enná fara
heim þegar hann fer aftur. Svo opnaði ég bókina
aftur og las þar til ég datt útaf.
Ég svaf
ekki mikið í nótt, en var samt alveg hress þegar
ég vaknaði. Ég klæddi mig og burstaði
tennurnar og lagði svo af stað út með Josephine og
Goethe (sem er líka franskur). Leiðin lá á
smá fyrirlestur í Dorothy Hodgkins building. Ég
varð ástfangin af Keele á leiðinni, en þessi
bær er gullfallegur. Myndir á morgun. Ég sá
tvo íkorna á leiðinni í bygginguna og það
var nógu gott fyrir mig. Fyrirlesturinn reyndist vera 3
klukkutímar straight, og ekkert okkar hafði dottið í
hug að borða svo við skelltum okkur 10 saman í
kring um 3 manna hringborð eftir fyrirlesturin og fengum okkur
samlokur. Við skiptinemarnir (eða betur þekkt sem
International students) kunnum sko að passa hvort annað :)
Eftir það
lá leiðin í 3 klukkutíma langt Enlish
Assessment próf, þar sem ég svaraði 16
spurningum úr lesskilningi, skrifaði ritgerð, og tók
munnlegt próf. Mjög tilgangslaust þar sem ég
stórlega efast um að ég þurfi auka
enskukúrsa, en maður gerir bara eins og manni er sagt hér.
Ég fékk samt menningarsjokk númer 2 í
prófinu, sem var mjög asnalegt en ég fékk
brjálaða innilokunarkennd og vildi bara fara heim. Enn og
aftur tók þrjóskan stjórnina og ég
sat kjurr og leyfði því að líða hjá.
Eftir 6 tíma
setu vorum við alveg búin á því þannig
að við fórum í bókasafnið (sem er
fallegasta bókasafn sem ég hef séð, myndir
seinna :p) og fengum okkur internetkapla (ég er núna
tengd við netið jeij!) og svo fórum við í
epískan leiðangur inn í Newcastle. Ég segi
epískan vegna þess að við vorum 9, og byrjuðum
á því að ryðjast inn í O2 og panta
6 Pay-as-you-go símkort og 2 síma með símkortum.
Hálftíma fyrir lokun. Grey strákurinn var
geðveikt lengi að afgreiða okkur, en ég lenti á
smá spjalli við hann meðan hann var að afgreiða
okkur, sem endaði með því að hann gerði
ALLT fyrir okkur. Ég á núna breskt símanúmer
og 10 punda kredit. Þar að auki fáum við 50
fríar mínútur á mánuði til að
hringja í heimalandið okkar fyrir hver 10 pund sem við
setjum inn og 300 frí sms innan UK. Það ætti
að endast! Eftir það fórum við í The
Pound Shop, sem er besta búð í heimi, bar none. Ég
fékk ALLT þar, og það kostaði bókstaflega
ALLT pund. Nema hlutir sem kosta meira en pund, þeir voru
alltaf 2 for 1 pound eða 4 for 1 pound. Og alvöru merki
líka. Fékk Herbal Essences sjampó og hárnæringu
með kókoslykt á 2 pund (sem kosta 800 kr. saman
heima). Svo var risastór kitchenware deild þar og við
keyptum okkur öll helstu nauðsynjar. Ég á núna
ofnfast mót, tupperware, bretti, hnúfa, skálar,
disk, bolla, you name it :) Ég verslaði tvo fulla
innkaupapoka (af eldhúsáhöldum og vatni og svona
mind you) fyrir 21 pund!!!
Við ætluðum
að segja þetta gott, af því að allt í
Newcastle-Under-Lyme lokar hálf sex, en ég spurði
strákinn á kassanum hvort það væri
einhver Supermarket opinn, vegna þess að eftir 2 daga af
samlokum dauðlangaði okkur í alvöru mat. Svo
reyndist vera en Woolworths (held ég að það
heiti) er opinn til 8 og hann gaf okkur (slæmar) leiðbeiningar
þangað. Við fundum Woolworths á endanum og þegar
við komum inn tókum við öll sem eitt andköf
af gleði. Það var eins og við hefðum verið
matarLAUS í tvo daga, ekki að éta kaffiteríufæði.
Við misstum okkur gersamlega og eyddum 2 tímum í að
labba í gegnum þennan stað. Ímyndið ykkur
hagkaup í Holtagörðum, nema í stað
snyrtivöru- dóta og fatadeilar er bara matur og
kitchenware. Og svona ca 50 gerðir af hverju. Þetta var
magnað.
Þar af
leiðandi á ég ekki aðeins það sem
fékkst í pound shop (eins frábær og hún
er, er ekkert matarúrval þar...fullt fult af jólaskrauti
samt!) heldur einnig vínber, jarðaber, handheldan blender
(hann er SNILLD), pott og pönnu, mandarínur,
piparmyntute, hakk, grænmeti...bara you name it. Auk þess
er ég nú að éta mig sadda af Aero súkkulaði.
Nammigott. Afgreiðslukonan var frábær, kallaði
mig duck (sem er svipað og að segja "elskan" heima)
og ég greip sjálfa mig glóðvolga að
segja "Cheers" við hana, en hér er Cheers sama
og takk. Við komum út með svo marga poka að við
hringdum á leigubíl (sem reynist vera ódýrari
fyrir fjórar manneskjur en að borga í strætó...)
og komumst heim heilu á höldnu.
Við lögðum
öll leið okkar í eldhúsið til Arienne og
elduðum okkar fyrstu máltíð saman, og sátum
til 12 að ræða um heimalöndin okkar, hvort annað
og þessa erfiðu reynslu að vera einn á báti.
Ég átti í svipuðum samræðum við
Josephine fyrr í kvöld og hef komist að þeirri
niðurstöðu að hér úti eru allir í
sömu vandræðum og ég, að fá heimþrá
og vilja fara heim og flestir ætla sér að vera
lengur. Og það gefur manni ótrúlegan styrk.
Þar að auki finn ég núna að ég á
vini hérna úti, sem vilja halda sambandi af sömu
ástæðum og ég, safna símnúmerum,
borða saman, hittast. Og það er ótrúlegt
öryggi að eiga mat sem ég vil og hafa síma sem
ég get notað, og að vera komin á internetið
er ótrúlegra en ég get sagt. Það er
geggjað!!
En nú er
klukkan margt í Keele, herbergisfélagan mín er
sofnuð og ég ætti að gera eitthvað svipað.
Vil samt skilja við ykkur öll með einni skemmtilegri
sögu en í kvöld fann ég risastóra
lifandi kónguló, og tvo dauða kakkalakka á
klósetti á neðstu hæð í
byggingunni hennar Arienne. Mér hafði ekki flogið í
hug að hér væru svona kvikyndi og ég er
dauðhrædd við allt núna. Reyndar er ég
ekki á  fyrstu hæð, heldur annarri, en hver
veit hvaðan kvikyndin smjúga. Ég vil ekki einu
sinni skilja súkkulaðið mitt eftir á borðinu
ef eitthvða skordýr skyldi sækja í það.
Ojbarasta ;)
Þetta er
orðið mjög langt og til hamingju þú fyrir
að hafa nennt að lesa þetta. Ég elska ykkur öll
heima, læt vita reglulega af mér núna og set inn
fleiri myndir, og ég reyni að hringja eins mikið og ég
get en notkun Skype er víst með öllu óheimil
hér, því miður :( Ég finn einhverja
aðra leið. MSN til dæmis. Endilega talið við
mig þar :)
Cheers,
Anna Margrét
Keele-íbúi.
p.s.
Stjörnuspá dagsins í dag; STEINGEIT 22. desember - 19. janúar
Þú ert meira en tilbúinn til að synda á móti straumnum til að upplifa það sem fáir upplifa. Og nú er komið að einum slíkum djörfum strákapörum..
Þangað til ég legg af stað í langferðina...
Þó ekki ferðina stóru, enda er ég hvergi nærri því að geispa golunni, en þetta er samt stór ferð, ég er á leið til útlanda. Nánar tiltekið til Keele. Að læra. Eitthvað.
Ég er á leið út í hinn stóra heim með 23 kílóa ferðatösku fulla af fatnaði, 15 kílóa handfarangursferðatösku með helstu nauðsynjum og slatta af breskum og íslenskum pening í veskinu mínu. Bróðir minn er búinn að fá lykilinn af bílnum, Klara er búin að fá allt það sjónvarpsefni sem ég hyggst ekki taka með mér og Daði kemur í humátt á eftir mér með háhæluð kvenmannsstígvél í ferðatöskunni. Ég vona að hann verði ekki stoppaður í tollinum, það gæti orðið erfitt að útskýra það.
Ein góð vinkona mín sagði mér að þegar hún flutti út í 10 mánuði var hún send í bíó kvöldið áður til að róa taugarnar. Ég hef reyndar ekki tíma til að fara í bíó, en ég borðaði steinasteik og fullt af salatinu hennar mömmu, er að fara í Vesturbæjarísbúðina að kaupa eftirrétt og ætla í epískt bað áður en ég fer að leggja mig, vegna þess að þetta er síðasta baðið sem ég fer í þangað til ég skelli mér í jólabaðið.
Mér finnst undarlegt að hugsa til þess að eftir þrjá mánuði kem ég aftur heim, rétt í tæka tíð fyrir jólin, mögulega með 1 tonn af bókum með mér (ég verð eins og Lísa í Undralandi þegar ég kemst inní Barnes & Noble, svo ekki sé minnst á það hvað það er auðvelt og ódýrt að panta bækur af amazon.co.uk) og vonandi reynslunni ríkari. Þetta verður góð ferð og mjög góð fyrir mig og ef ég mætti taka allt ferlið til baka núna þá myndi mér ekki detta í hug að gera það neitt öðruvísi.
Ef þig langar að senda mér vesturbæjarís, appelsín eða bara langt bréf, eða koma í heimsókn, hafðu þá samband við mig (ég verð með þessa síðu, skype og msn) og ég skal gefa þér nánari upplýsingar um staðsetningu mína (en góðar siðavenjur hafa kennt mér að gefa ekki viðkvæmar upplýsingar upp á netinu bara si svona). Ef þig langar til þess að ég sendi þér póstkort, ben & jerry's eða eitt gott langt bréf (eða bara komi í heimsókn), skildu þá eftir heimilisfang í kommentakerfinu. Nú eða hafðu samband við mig ef þú ert svona vel upp alin/n eins og ég.
Ég kveð því að sinni, ég veit ekki hversu langan tíma það mun taka að koma netinu upp þegar ég er komin til Keele, en ég verð virk í blogginu um leið og það gerist og mun reyna að setja eins margar myndir á netið og ég get svo þið sjáið nú afrakstur þessarar ferðar minnar sem fyrst :)
Einnig vil ég benda nánustu á það að ég verð með símann á mér og fyrstu dagana, eða þangað til ég næ að fá mér breskt númer, þá mun ég vera með íslenska símkortið á mér. Vinsamlegast ekki senda mér sms eða hringja í mig nema í sárri nauðsyn og neyð, vegna þess að ég hyggst ekki borga símreikning upp á margar millur!
Bless á meðan!
Anna Margrét
Látum þetta verða síðasta bloggið um minnisleysi mitt. Þetta er bara of gott til að sleppa því.
Einhvers staðar, á mjög vel földum og góðum stað inni í Eymundsson í Kringlunni er flaska sem er hálf full af sítrónu Kristal.
Ég lagði hana frá mér þegar ég var að skoða eitthvað og mundi svo ekkert hvar ég hafði lagt hana frá mér. Eftir örstutta leit, skammaðist ég mín of mikið og ákvað að stinga bara af.
Verði þeim sem finnur hana að góðu.
Isis
Í morgun þegar ég ætlaði að grípa bol til skiptanna með mér á leiðinni út, komst ég að því að ég hafði víst hent bolnum ofan í vatnsglas sem stóð á borðinu mínu með þeim afleiðingum að bolurinn var rennandi blautur. Sem í sjálfu sér er ekki svo slæmt nema hvað að ég hafði vafið dagbókinni minni, þessari yndislegu dagbók sem bjargar mér svo oft þegar ég á ljóskudaga og gleymi að hitta vinkonur mínar eða fara til tannlæknis, inn í bolinn. Bolurinn hafði svo blotnað svo svakalega að hann hafði bleytt bókina líka og nú er hún rök, illa lyktandi og krumpuð.
Ég vil meina að þetta sé leið einhvers í hinu efra til að segja mér að;
A)Kaupa mér fallegu 08/09 dagbókina sem ég sá í bóksölunni um daginn og langaði svo í.
B)Hætta að nota dagbók og pína sjálfa mig til að þjálfa minnið mitt.
eða
C)Taka oftar til í herberginu mínu...
Isis
Ég hringdi í móður mína áðan. Sem er svo sem ekkert fréttnæmt, ég geri það oft á dag, nema hvað að ég hringdi í hana út af mjög sérstöku málefni. Ég var nefnilega búin að glopra VISA kortinu mínu niður eitthvers staðar og þurfti bráðnauðsynlega að finna það.
Móðir mín elskuleg stakk upp á því að ég léti loka kortinu og fengi mér nýtt, en þar sem ég er með fartölvulán á kortinu, auk þess sem það er tryggingin á fallega bílaleigubílnum mínum og hótelherberginu í London svo eitthvað sé nefnt, þá var það eiginlega ekki möguleiki. Ég hafði líka svo sterka tilfinningu fyrir því að hafa lagt það frá mér á "góðan" stað, ég gat bara ómögulega munað hvaða stað.
Svo spurði hún mig hvar ég hefði notað það síðast. Ég gat ekki munað það. Þá stakk hún upp á því að ég gáði á heimabankanum mínum. Mér hafði ekki dottið það í hug. Ég sá strax hvar ég hafði notað það síðast og um leið small eitthvað í heilanum á mér og ég flýtti mér að biðja Daða um að gá ofan í pokann utan af því sem ég hafði verið að versla þá (sem var heppilega enn á borðinu niðri).
Kortið er nú fundið...
Ég veit stundum ekki alveg hvar ég væri ef annað fólk væri ekki alltaf að hafa vit fyrir mér.
Takk kærlega fyrir elsku mamma
Bwahahaha....
Á vísir.is er grein um Nicole Kidman og hversu vel hún lítur út svona stuttu eftir að eiga dóttur sína. Með greininni er mynd af henni og eiginmanni hennar. Undir myndinni stendur skýrum stöfum; "Nicole Kidman klædd í Prada kjól og Keith Urban."
Engar kommur...
Er ég ein um að finnast þetta stórkostlega fyndið
Annars vildi ég bara koma á framfæri ánægju minni með B&L. Bíllinn minn hefur verið ónothæfur síðan í gærmorgun, en hann hefur verið lengi að starta sér og oft leiðinlegur í allt of langan tíma. Bifvélavirkinn ráðlagði mér að panta nýja fjarstýringu í lykilinn minn þar sem sú gamla væri ekki að virka sem skyldi. Franskir bílar
Nýja var pöntuð fyrir tæpum 2 vikum og mér sagt að það tæki viku að fá hana. Þegar ég fór að forvitnast um hana gat enginn sagt mér hvar hún væri niðurkomin, hvenær hún kæmi til landsins eða yfir höfuð neitt um pöntunina. Og þar sem bíllinn minn er kominn í verkfall og ég þarf eiginlega á honum að halda yfir helgina og í næstu viku var ég vitaskuld ekki par sátt með það. Mamma hringdi svo á eftir mér og henni var sagt að þeir skyldu skoða hvað hægt væri að gera fyrir mig.
Það borgar sig samt augljóslega að vera bara rólegur og kurteis (eins og ég er alltaf að segja ), vegna þess að ég fékk mjög fyndið símtal áðan þar sem mér var tjáð að þessi pöntun "gengi ekki fyrir sig eins og best væri" og að þeir "sæju ekki fyrir endann á henni von bráðar". Þetti túlkaði ég lauslega sem að það hefðu orðið einhver mistök á, sem þeir gætu ekki alveg leiðrétt, en yrðu leiðrétt hið fyrsta. Hins vegar voru þeir tilbúnir til að redda mér bíl til afnota á meðan ég bíð og get ég sótt hann til þeirra núna beint eftir vinnu.
Ég er svoooo sátt með þessa þjónustu. Svona á þetta að vera. Nú er mér svosem alveg sama hvenær lykillinn kemur (innan skynsamlegra marka) og á meðan get ég notað annan bíl til að stússast vegna Englandsfarar. Ég er mjög sátt.
Keele eftir 15 daga  Ef ég er ekki búin að mæla mér mót við þig nú þegar, og þig langar endilega að hitta mig áður en ég fer þá fer hver að verða síðastur. Það er aðeins of mikið að gera hjá manni þegar maður er að flýja land í nokkra mánuði....
Endilega skildu þá eftir línu
Bless í bili
Isis
Ég er illa innrætt. Ég hlýt að vera það. Ég hlæ að enskunni í formlegum e-mailum sem send eru á vegum HÍ ef hún er vitlaus. Ég er orðin meira snobbið. Í dag fékk ég til dæmis e-mail þar sem talað var um að þeir sem hefðu misst af kynningarfundinum mættu samt mæta á æfingu. Á ensku var það þýtt sem "mist". Sem mér fannst ótrúlega fyndið.
Annars hef ég nú ekki efni á að vera að gera grín að öðrum. Þarsíðustu helgi púsluðum við skötuhjúin ógeðslega erfitt Wasgij púsl, með fullt af litlum köllum og smáatriðum. Við tókum það með okkur upp í sumarbústað og eyddum heilli helgi í að klára það og þar sem við vorum nú ekki alveg á því að skemma það strax aftur púsluðum við því ofan á flísteppið mitt og brutum það svo saman og bárum varlega út í skott, og þaðan inn í herbergi í Mosó og settum það varlega frá okkur á gólfið. Í heilu lagi!
Nema hvað að síðustu helgi var ég að fara fram í stofu að horfa á mynd með móður minni,  og mér var svo kalt að ég ákvað að taka eitthvað fram með mér. Ég var náttúrulega búin að steingleyma því hvað var pakkað inn í flísteppið þegar ég sá það liggja þarna samanbrotið á gólfinu, hugsaði með mér hvað ég væri nú heppin að hafa fundið það, og kippti því með mér. Allt púslið hrundi út úr teppinu og dreifðist út um allt gólf, í molum. Þar fór það. Ég var svo svekkt að ég hefði getað skælt.
Þetta minni mitt er á við gatasigti
Annars áskil ég mér hér með rétt til að hlæja að öðrum þegar þeir heyra ekki til af því ég geri svo mikið grín að sjálfri mér
Isis
Þetta er fyrir ástina mína...
Sem gefur mér blóm, nánar tiltekið þessi blóm, bara vegna þess að hann langar til þess.
Ég elska þig :)
Isis
Ég er með minni á við gullfisk. Ég veit það alveg. Ég gerði meira að segja gott grín að sjálfri mér eftir vöfflubaksturinn í gær þegar ég þurfti að spyrja Daða hvort ég hefði verið í einhverri yfirhöfn, eða bara komið á bolnum vegna þess að ég hreinlega mundi það ekki. Ég hef alltaf verið svona, og verð alltaf svona og ef ég skrifa hluti ekki niður í dagbók þá gleymi ég þeim. Ætti kannski að kaupa mér einhverja massíva áður en ég fer út :D Mín er eiginlega að gefast upp eftir að hafa verið þvælt fram og til baka ^_^
Annars er ég nú að skrifa þessar línur af því ég er með svo glimrandi gott og nýlegt dæmi um gullfiskaminnið mitt;
Rétt áðan teygði ég mig í töskuna mína til að ná í gsm símann minn. Það eru tvö hólf framaná töskunni minni, lyklarnir og gemsinn eru vanalega í öðru hvoru hólfinu. Ég teygði höndina niður í vitlausan vasa og tók upp tilkynningu um pakka á pósthúsinu í Mosó í stað símans. Ég mundi allt í einu eftir því að þetta hafði borist í gærkvöldi og ég átti enn eftir að leysa þetta út. Þar að auki veit ég ekkert hvað þetta er, því ég hef ekki pantað neitt af amazon síðan við fengum wii leikina góðu. Í öllum vangaveltunum um það hvað í ósköpunum þetta gæti verið, teygði ég mig niður í hinn vasann, náði í símann, stakk svo símanum og bögglatilkynningunni ofan í stóra hólfið á töskunni, án þess að svo mikið sem líta á símann, setti töskuna á gólfið og hélt áfram að vinna.
Tíu mínútum síðar leit ég upp úr því sem ég var að gera og hugsaði "hvar er nú eiginlega síminn minn".
Ég er búin að vera að pæla mikið í framtíðinni uppá síðkastið, sérstaklega húsnæðis- og menntamálum með tilliti til atvinnu og LÍN. Formlegt, ikke?
Ég er sumsé að endurskoða námið mitt í HÍ. Aftur. Ég fór að ráði Ms. Lorelai Gilmore og bjó til pro's & con's lista yfir námin sem mér finnast spennandi og hef ákveðið að birta hann hér á blogginu, þrátt fyrir að vera nú þegar búin að ákveða um framhaldið;
1. valmöguleiki; 120 eininga enskunám og 120 eininga bókmenntafræðinám.
Kostir;
Tvöföld BA-gráða. Ég held ég sé menntasnobb.
Flestir möguleikar á framhaldsmenntun.
Gallar;
Bókmenntafræðin er ekki kennd í fjarnámi. Sem þýðir minni vinna með skóla.
4. ára nám. Laaaaaaangt þangað til maður ústkrifast með BA.
Minnst áhugavert.
2. valmöguleiki; 120 eininga enskunám og 60 eininga þýðingafræðinám.
Kostir;
3. ára nám. Styttra í BA.
Hef mjöööög mikinn áhuga á þessu námi og finnst það spennandi.
Gallar;
Þýðingafræðin er ekki kennd í fjarnámi. Sem þýðir minni vinna með skóla.
Minna framboð á framhaldsnámi.
3. valmöguleiki; 180 eininga enskunám.
Kostir;
3. ára nám. Styttra í BA.
Hef meiri áhuga á enskunni en bókmenntafræðinni.
Allt kennt í fjarnámi. Get unnið mikið með skólanum.
Gallar;
Ekki eins skemmtilegt og þýðingarnar.
Minnst framboð á framhaldsnámi.
Mér finnst 2. valmöguleikinn lang mest spennandi. Framhaldsnámið er alveg nóg, og þótt ég geti ekki unnið eins mikið þá reddast allt. Ég er komin með námsplan næstu 6 árin liggur við. Ég held ég fari aldrei út á vinnumarkaðinn
Gott dæmi um þennan námsþorsta minn er til dæmis að ég er víst búin að skrá mig í 45 ECTS einingar þessa önnina. Það jafngildir 22,5 einingum í gamla kerfinu. Á einni önn... Ég pældi ekki einu sinni í þessu, skiptinámið er metið á 30 einingar, næstum því alveg sama hvað ég tek margar einingar úti og svo bætast við þessir 2 áfangar sem ég tími ekki að skrá mig úr hér heima. Samanlagt eru þetta samt bara 4 áfangar. Þessir tveir úti gilda samanlagt 30 ECTS einingar, svo þeir eru nú alveg massífir býst ég við. En samt. Mér fannst þetta ekkert mikið  En ég verð víst að fara og biðja um undanþágu til að vera skráð í svona margar einingar á einni önn, vegna þess að ráðlagður annarskammtur hvers háskólastúdents er víst ekki meiri en 40 ECTS einingar.
Skræfur ´
Mér finnst ofsalega bjánalegt að mega bara taka ákveðið mikið nám. Ef ég mætti ráða væri ég í skólanum allan daginn. En það væri örugglega samt leiðinlegra þegar kemur að því að taka prófin á haustin að vera kannski í 10 áföngum
Isis
<object class="youtube" type="application/x-shockwave-flash" style="width: 425px; height:350px;" data="http://www.youtube.com/v/mUwnkTnHrtI&rel=1"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/mUwnkTnHrtI&rel=1" /><embed src="http://www.youtube.com/v/mUwnkTnHrtI&rel=1" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"></embed></object>
Ég hef uppgötvað í sumar að bakið á mér er ekki eins og það á að vera (er ekki eins og fólk er flest?). Ég hef reyndar vitað þetta í einhvern tíma. Ég hef farið nokkrum sinnum í nudd, samtals til 4 mismunandi nuddara og allar hafa sagt það sama við mig. "Jesús minn, hvað þú ert með mikla vöðvabólgu". "Er ekki sárt að vera svona?" Einu sinni var líka sagt við mig; "Þú verður að hætta að spenna vöðvana, annars get ég ekki nuddað þig." Eina vandamálið var að ég var ekki að spenna vöðvana...
Eftir að nuddkonan í vinnunni fór í sumarfrí, og ég tók verkjalyf á hverjum einasta degi í tvær vikur, ákvað ég að fara til læknisins. Sá skrifaði upp á beiðni til sjúkraþjálfara fyrir mig og mætti ég í fyrsta tímann minn fyrir nokkru síðan. Sjúkraþjálfarinn minn er mikill sómamaður, og byrjaði á því að skoða bakið á mér og komst að þeirri niðurstöðu að auk þess að vera með fastan hryggjarlið í hálsinum er ég víst með það mikla vöðvabólgu í öxlum og hálsi að hún sést með berum augum, og svo er ég að byrja að safna mér í góðan hnút í mjóbakinu líka. Alltaf að safna sko.
Þannig að hann ákvað að byrja meðferð. Þrátt fyrir einhverja samskiptaörðugleika okkar á milli (ég þykist alltaf geta mætt í tíma þegar hann singur upp á því en þarf svo iðulega að breyta honum þegar ég fatta að ég er upptekin. Orsök vöðvabólgunnar mögulega fundin...) hef ég nú þegar mætt í nokkra tíma hjá honum og líst vel á. Í fyrsta tímanum potaði hann í axlirnar á mér, reyndi að rífa höfuðkúpuna af í gegnum skinnið, og lét braka í bakinu á mér. Ég losnaði við hausverkinn. Í öðrum tímanum potaði hann vel og lengi í bakið á mér og lét braka í bakinu á mér. Setti svo heitan bakstur á það og ég sofnaði. Ég losnaði við bakverkinn.
Í þriðja tímanum spurði ég hann, forvitin, hvort að hann væri kannski að hnykkja bakinu á mér (að hnykkja?). Í hvert skipti sem hann lét braka í bakinu á mér datt mér nefnilega í hug þessi eftirminnilega lína Izzards; "...I'm gonna crack your bones." Og mikið rétt, sjúkraþjálfarinn játaði að vera aðeins að hnykkja. Til að liðka hrygginn sagði hann. Ég gat ekki annað en hlegið.
"You look like your mother, I'm gonna crack your bones." Hann er fyndinn.
Núna spila ég allt þetta atriði í hausnum á mér þegar ég fer. Og hlæ dátt. Bíð bara eftir því að hann dragi fram hamarinn. "Make the noise, I live for the noise!"
"Chiropractor. 93 letters..."
Pælið samt í því. Hausverkur og bakverkur. Smá pot og brak og málið er dautt. Ekki misskilja mig. Það er ca vika síðan ég fór síðast og ég er farin að fá í bakið aftur... En samt. Mannslíkaminn er ótrúlegur. Og að láta sér detta þetta í hug. "I'm gonna crack yer bones."
Btw. Þetta var það fyndna sem ég ætlaði að blogga um en mundi svo ekki. Það stóðst alveg mínar væntingar...
Isis
SD: *syngjandi röddu* Góðan daginn, ég er að hringja frá Gallup, þú hefur lent í úrtaki Sjóvá vegna könnunar um fólk sem lent hefur á síðustu sex mánuðum lent í bótaskyldu tjóni, hefuru tíma til að svara könnuninni?
I: Uuuuuh.....jájá.
SD: *syngjandi röddu* Þakka þér kærlega fyrir það. Áður en könnunin hefst ber mér skylda til að segja þér að þér ber hvorki skylda til að svara könnuninni í heild sinni eða einstökum spurningum könnunarinnar og allar niðurstöður eru trúnaðarmál etc.
I: Ok.
SD: *syngjandi röddu* Nú hefst könnunin. Hefur þú á síðustu 8 mánuðum lent í tjóni sem tilkynnt hefur verið til lögreglu eða tryggingarfélags og þegið bætur þess vegna?
I: Nei.
SD: Allt í lagi, þá er þetta ekki lengra. Takk fyrir. *click*
Stysta Gallup-könnun...ever.
Isis